Eftir margra mánaða vangaveltur hefur það loksins verið staðfest að Harrý Bretaprins verði viðstaddur til að styðja föður sinn Karl III konung á einum stærsta degi lífs hans. Breskir fjölmiðlar greindu frá því að Harry verði í Westminster Abbey fyrir krýningarathöfn konungsins sem fer fram eftir tæpar þrjár vikur. Eiginkona hans Meghan Markle dvelur eftir í Kaliforníu ásamt tveimur börnum þeirra Boga prins, sem fagnar fjórða afmæli sínu sama dag, og Lilju prinsessu.
Mun þetta vera í fyrsta skipti sem Harrý sést opinberlega með konungsfjölskyldunni sem báru hitann af frásögnum hans í Spare. Greint hefur verið frá því að Harrý muni dvelja í Frogmore Cottage í Windsor í síðasta sinn. Sumarbústaðurinn var gjöf frá drottningunni til Harrý og Meghan eftir brúðkaup þeirra árið 2018. Eftir miklar endurbætur á húsinu tóku þau loks ákvörðun um að segja skilið við konunglega lífið og hófu nýjan kafla í Bandaríkjunum. Þau heimsóttu bústaðinn reglulega en voru að lokum beðin um að “skila“ fasteigninni.
Heimildir herma að eignin verði tæmd fyrir sumarið og verður hún því laus fyrir eina loka dvöl hjá Harrý fyrir krýninguna. Ljóst er að samkoman gæti verið vandræðaleg eftir frásögn Harrý í Spare en þar gagnrýndi hann meðal annars Kamillu og Vilhjálm.