Lögreglu barst tilkynning um hópslagsmál í Hlíðunum í gærkvöldi en stuttu áður hafði verið kvartað vegna hávaða frá mótorhjólum í sama hverfi. Löregla fór á vettvang en allir voru á bak og burt. Óskað var eftir aðstoð lögreglu í tvígang í miðbæ Reykjavíkur vegna manna í annarlegu ástandi. Lögregla ók báðum mönnunum til síns heima. Karlmaður angraði gesti á veitingahúsi og lét sér ekki segjast. Starfsfólk óskaði því eftir aðstoð lögreglu sem vísaði manninum rakleitt út af staðnum.
Síðar um kvöldið barst lögreglu tilkynning um meðvitundalausan aðila eftir hópslagsmál í Hafnarfirði. Sjúkrabifreið fór á vettvang og sótti manninn sem þá var kominn til meðvitundar. Í Kópavogi ruddust tveir aðilar inn í verslun vopnaðir hamri og kúbeini og höfðu á brott með sér peninga úr sjóðsvél. Starfmaður var beittur ofbeldi og haldið niðri. Hlaut hann áverka í andliti eftir árásina og er málið nú til rannsóknar hjá lögreglu. Þá barst lögreglu tilkynning um gólandi mann í strætóskýli en ekkert athugavert var á vettvangi þegar lögregla mætti og má því ætla að maðurinn uppátækjasami hafi látið sig hverfa.