Sjúkrabifreið var kölluð út í heimahús í gærkvöldi til þess að sinna sjúklingi. Á meðan sjúkraflutningamenn voru inni á heimilinu kom aðili og rótaði til í sjúkrabifreiðinni og lagði hluti á jörðina fyrir framan hann. Talið er að aðilinn hafi átt við andleg veikindi að stríða. Lögregla vakti ósjálfbjarga einstakling á grasbala í Laugardalnum.
Var hann vakinn og gekk sína leið. Síðar um kvöldið barst lögreglu tilkynning um æstan og ógnandi aðila í búsetjukjarna í miðbæ Reykjavíkur. Lögregla fór á vettvang sem varð til þess að íbúinn róaði sig niður. Í Breiðholti var tilkynnt um slagsmál. Þar var um að ræða aðila undir lögaldri og var málið unnið með forráðamönnum og barnavernd. Auk þess sinnti lögregla hefðbundnu umferðareftirliti og stöðvaði nokkra ökumenn sem eru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna. Einn þeirra hafði ekið þvert yfr hringtorg og hafnað á umferðarskilti. Maðurinn var í kjölfarið handtekinn en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort hann hafi slasast.