Samkvæmt upplýsingum úr dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var réttindalaus rútubílstjóri stöðvaður þegar hann var að sækja erlenda ferðamenn í miðbænum í dag.
Ekki kemur fram hver örlög ökumannsins urðu, en ætla má að erlendu gestirnir hafi setið eftir með sárt ennið.
Þá var tilkynnt um einstakling með hníf innan klæða í Austurborginni. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að ekki reyndist vera um að ræða hníf heldur áhald því líku.
Stórtækur grillari fékk heimsókn lögreglu þegar tilkynnt hafði verið um eld á svölum hans. Sumarkáti grillarinn kyndir kannski minna undir næst.
Tilkynning barst lögreglu um umferðarslys í hverfi 104. Árekstur var á milli bifhjóls og bifreiðar, ekki eru gerð frekari skil á atvikinu og því óljóst hvort einhver hafi slasast.
Þá var tilkynnt um reyk sem í skóglendi í Mosfellsbæ og er málið samkvæmt lögreglu nú í skoðun.