Hjörtur Howser, leiðsögumaður og tónlistarmaður, lést í gær. Aðstandendur hans greina frá andlátinu á samfélagsmiðlum. Hjörtur varð bráðkvaddur við Gullfoss í gær þar sem hann var við störf.
Hann var fæddur þann 30. júní 1961 og því 61 árs þegar hann lést. Hann starfaði sem leiðsögumaður undanfarin ár en var hljómborðsleikari á árum áður með þekktum hljómsveitum. Hann lék með Grafík, Kátum piltum, Vinum Dóra, Mezzoforte og Fræbbblunum. Hjörtur annaðist um tíma veitingahúsarýni fyrir Mannlíf. Við þökkum honum samfylgdina og vottum aðstandendum hans dýpstu samúð.