- Auglýsing -
Havarí á Karlsstöðum kynnir dagskrá sumarsins 2019.
Á Karlsstöðum búa hjónin Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteinsson. Þar starfrækja þau, gistiheimili, tónleikastað, matstofu, snakkgerð og menningarstarfsemi undir merki Havarí.
Laugardagur 15. júní:
Hjálmar ræsa sumarið og fylla hlöðuna af gleði og hamingju.
Hjálmar ræsa sumarið og fylla hlöðuna af gleði og hamingju.
Föstudagur 5. júlí:
Ein af okkar allra mögnuðustu listakonum, Mr. Silla, heldur tónleika ásamt Jae Tyler. Prins Póló hitar upp.
Ein af okkar allra mögnuðustu listakonum, Mr. Silla, heldur tónleika ásamt Jae Tyler. Prins Póló hitar upp.
Laugardagur 6. júlí:
Búkalú um lönd og lendar. Fullorðins fjölbragðasýning með fjölda innlendra og erlendra kabarettlistamanna.
Föstudagur: 26. júlí:
Sveitaball með hinum óviðjafnanlegu og óútrýmanlegu Geirfuglum. Þetta verður eitthvað!!
Laugardagur 17. ágúst:
Hinir árlegu tónleikar FM Belfast í Havarí eru löngu orðnir goðsögn. Þau slá botninn í sumarið og rífa þakið endanlega af hlöðunni!
„Við finnum angan af vori getum ekki beðið eftir að njóta þessara viðburða með ykkur í taumlausri sveitasælu.“ – Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteinsson
Forsala á alla viðburðina er á tix.is