Afmælisbarn dagsins er listamaðurinn Karl Kristján Davíðsson; kappinn fagnar 46 ára afmæli sínu í dag.
Karl er fæddur í Reykjavík árið 1977. Ólst upp í Vesturbænum og flutti svo um 11 ára aldur til Svíþjóðar ásamt fjölskyldu sinni. Þar fékk Karl fljótlega áhuga á myndlist.
Hann er fyrst og fremst sjálflærður listamaður, en hefur sótt nokkur námskeið hér og þar.
Mannlíf spurði hann hvort að hann ætli að gera eitthvað sérstakt í tilefni dagsins.
„Ég fer út að borða með konunni og síðan förum við á sýninguna sem ég er partur af. Síðan er það bara að hafa það létt í kvöld og horfa á Eurovision.“
Síðan var hann spurður hvað væri næst á dagskrá hjá honum.
Karl segir frá aðalverkefni hans sem heitir „Götustriginn“ en annars ætlar hann „bara að slaka á með fjölskyldunni.“
Mannlíf óskar Karli innilega til hamingju með daginn.