Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er kjarkmaður. Það kom ágætlega í ljós í gær þegar hann blandaði sért í umræðuna um úrsögn Eflingar úr Starsfsgreinasambandi og benti réttilega á að einungis brotabrot af af félagsmönnum hefði tekið ákvörðunina og væri dæmi um sambandsleysi forystu og félagsfólks. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var snögg að bregðast við og furðar sig á áhyggjum fjármálaráðherra sem hún kallar yfirframkvæmdastjóra auðstéttarinnar. Hún boðar frekari átök og ætlar að virkja félagsmenn til átaka og láta kjósa um verkföll.
Á einhverjum tímapunkti má Bjarni reikna með að þurfa að takast á við Eflingu fyrir hönd ríkisins. Hann áttar sig ekki á því að hver af öðrum hafa andstæðingar Sólveigar fallið í valinn. Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari og frændi Sólveigar, þurfti að víkja af stóli og var niðurlægður. Halldór Benjamín Þorbergsson, talsmaður vinnuveitenda, er á förum, laskaður eftir átök. Þá er höfuðfjandi Sólveigar Önnu, sá öflugi Vilhjálmur Birgisson, með klofið og brennandi Starfsgreinsambandið undir fótum sér eftir að hafa lent í ónáð fyrrum vinkonu sinnar. Ekki má svo gleyma að Sólveig hefur afgreitt fjölda samherja sinna í Eflingu og gert þá útlæga.
Þótt Sólveig Anna hafi ekki náð teljandi árangri í kjaramálum fyrir félagsfólk sitt er hún sérfræðingur í að búa til hávaða og dugleg við að slátra óvinum sínum. Bjarni ætti að gaumgæfa það áður en hann heldur áfram að pönkast á baráttukonunni skæðu …