Lögregla handtók í gærnótt tvo menn í miðbæ Reykjavíkur. Mennirnir eru báðir grunaðir um að hafa tekið þátt í slagsmálum og ógnað fólki. Mennirnir voru fluttir á lögreglustöð þar sem tekin var af þeim skýrsla og var þeim sleppt að því loknu. Um klukkan hálf þrjú í gær var lögregla kölluð út á ný vegna líkamsárásar í miðbænum.
Þrír menn höfðu ráðist að einum en árásaraðilarnir voru á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. Hálftíma síðar hafði íbúi í hverfi 108 samband við lögreglu eftir að hann áttaði sig á að brotist hafði verið inn á heimili hans. Íbúanum var brugðið en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort þjófurinn hafi náðst. Í Vesturbæ handtók lögregla mann sem er grunaður um þjófnað og brot á lögreglusamþykkt. Sá gisti í fangaklefa. Þá var annar þjófur á ferð í Kópavogi sem stal úr nokkrum bifreiðum. Lögregla handtók manninn skömmu síðar.