Tjaldarnir Tryggvi og Tryggvína hafa eignast unga!
Brotið tjaldsegg skaut blaðamönnum Mannlífs skelk í bringu í gærmorgun en það fannst fyrir utan skrifstofu miðilsins í Ármúlanum. En ekki var allt sem sýndist.
Undanfarnar vikur hafa hjúin Tryggvi og Tryggvína hafa legið á eggjum í gegnum súrt og sætt en veðrið hefur ekki alltaf verið upp á 10 og svo hafa hungraðir mávar svifið um í leit að æti.
En í morgun barst Mannlífi ábending frá konu sem vinnur í næsta húsi við Mannlíf. Hún sá tvo unga með foreldrum sínum. Þegar blaðamenn Mannlífs kíktu út um glugga sinn gátu þeir staðfest ábendinguna, tveir litlir og krúttlegir ungar hjúfra sig nú upp við foreldra sína sem reyna að skýla þeim frá veðri og vindum, og mávum.
Ljósmyndir verða teknar við fyrsta tækifæri.