Frá lögreglunni er þetta í fréttum:
Lögreglustöð 1 Austurbær Vesturbær Miðborg Seltjarnarnes.
Kl. 09:35: Tilkynnt um slys í hverfi 101, kona hafði dottið og kenndi sér meiðsla í öxl , flutt með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítalans til frekari skoðunar.
Kl. 10:34: Tilkynnt um rúðubrot í hverfi 101, einn aðili handtekinn og gistir hann fangageymslu sökum ástands.
Klukkan 10:50: Tilkynnt um þjófnað á dælulykli í hverfi 105 hann síðan notaður til úttektar á bensíni, gerandi ókunnur og málið í rannsókn.
Lögreglustöð 2 Hafnarfjörður Garðabær.
Klukkan 10:37: Tilkynnt um líkamsárás í hverfi 220, minniháttar meiðsli, einn handtekinn og gistir hann fangageymslu vegna ástands.
Klukkan 15:05: Ökumaður stöðvaður í hverfi 221 vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, hann laus að lokinni blóðsýnatöku.
Lögreglustöð 3 Kópavogur Breiðholt.
Ekkert að frétta.
Lögreglustöð 4 Grafarvogur Árbær Mosfellsbær.
Ekkert að frétta.