Afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni var opnuð í gær, þriðjudaginn 2. júní. Afeitrunardeildin heyrir undir fíknigeðdeild geðþjónustu Landspítala og og mun veita fjölskyldumiðaða þjónustu.
Um er að ræða tvö meðferðarrými þar sem ungmenni með alvarlegan vímuefnavanda koma til innlagnar í 1-3 sólarhringa, en eftir það taka við önnur úrræði. Þverfaglegt meðferðarteymi mun sinna ungmennum og aðstandendum þeirra á meðan dvöl stendur í samvinnu við barna- og unglingageðdeild (BUGL). Þá er náið samstarf við barnaverndarstofu og bráðamóttökur Landspítala.
Vel hefur verið gætt að aðbúnaði deildarinnar í samvinnu við hagsmunaaaðila er fram kemur í tilkynningu um opnunina. Þar segir að ráðuneyti heilbrigðis-, félags- og barnamála hafa verið verkefninu mikilvægir bakhjarlar. Sömuleiðis hefur Hringurinn lagt deildinni til mikinn stuðning í formi húsbúnaðar, innréttinga og tækja.
Við opnun deildarinnar fluttu ávörp þau Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri meðferðarsviðs, Nanna Briem forstöðumaður geðþjónustu, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Anna Björk Eðvarðsdóttir formaður Hringsins og Páll Matthíasson forstjóri.
Myndir / Þorkell Þorkelsson, Landspítalinn