„Fundurinn hefst með upplestri á nöfnum þeldökkra einstaklinga sem hafa verið myrtir af lögreglunni,“ segir m.a. í lýsingu á samstöðufundi sem fer fram á Austurvelli klukkan 16.30.
Átta mínútna og 46 sekúndna þögn tekur svo við en það er sá tími sem lögreglumaðurinn Derek Chauvin lét þunga sinn hvíla á hálsi George Floyd áður en hann lést þann 25. maí. Í kjölfar andláts Floyd hafa mikil mótmæli brotist út í Bandaríkjunum og víðar.
Þátttakendur á samstöðufundinum á Austurvelli í dag eru hvattir til að bera andlitsgrímur og halda fjarlægð við aðra þátttakendur eftir bestu geti.
Asantewa Feaster, Jeff Guarino, Derek T. Allen, Þorkell Brynuson, Sanna Magdalena Mörtudottir, Asantewa Feaster og Dori Levitt Baldvinsson munu halda erindi á fundinum.