- Auglýsing -
Lögreglan fékk tilkynningu laust fyrir klukkan 18.00 í gær um mann í annarlegu ástandi í miðbæ Reykjavíkur sem hafði ráðist á starfsmann rakarastofu á Laugavegi. Manninum hafði verið vísað út af stofunni sökum ástands.
Hann hafði þá skemmt gleraugu og bifhjól starfsmannsins. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Þar segir að málið sé í rannsókn.