Lögreglunni barst tilkynning um ráð í miðborginni í nótt. Tvær konur rændu mann sem þær fóru heim með eftir næturlífið.
Maður óskaði eftir aðstoð lögreglu eftir að hafa farið heim með tveimur konum eftir skemmtanahald í miðbænum. Segir hann að konurnar hafi skyndilega tjáð honum að þær væru vændiskonur og óskuðu efir að hann borgaði fyrir þjónustuna. Þegar maðurinn neitaði því, drógu þær upp vopn og hótuðu honum. Sagði maðurinn að konurnar hafi haft af honum fjármuni.
Ekki liggur fyrir að svo stöddu hverjar umræddu konur eru. Málið er í rannsókn.