Ölvaður maður lét ófriðlega og truflaði fólk í strætóskýli í austurborginni gær. Gripið var til þess ráðs þegar önnur úrræði þraut að hringj aá lögreglu sem kom á staðinn. Stuggað var við manninum sem hélt sína leið.
Annar vafasamur var á vappi og kíkti inn í bifreiðar. Lögreglan brá sér í eftirlitsferð en ekki reyndist vera um afbrot að ræða.
Rannsókn á máli nokkru leiddi til þeirrar uppgötvunar lögreglu að hann var ekki aðeins grunaður um aðild að umræddu máli. Hann reyndist dvelja ólöglega í landinu. Nú fer einnig fram rannsókn á því máli.
Í nótt voru fjórir ökumenn handteknir vegna ölvunaraksturs. Mál þeirra fara hefðbundinn farveg í kerfinu og þeir missa ökuskírteini sín. Að minnsta kosti einn var læstur inni í fangaklefa.
Það óhapp varð í austurborginni að drengur á vespu datt og hann meiddist. Sjúkralið og lögregla mættu á vettvang.
Í Hálsahverfi varð fólk vart við grunsamlegar mannaferðir. Lögregla brá skjótt við og fann þar mann í annarlegu ástandi. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu þar sem hann sefur úr sér.