Ljóðskáldið Kristján Hreinsson segir í pistli á Facebook-síðu sinni að „með því að leyfa unglingi að ráða því hvaða kyni hann tilheyrir, án tillits til raunveruleika, er stigið heimskulegt óheillaskref. Í stað þess að hafa vitið fyrir einstaklingum er þeim leyft að trúa því að þeir geti gengið á vatni“.
„Ég segist hafa fæðst í röngum líkama. Ef mér finnst ég vera unglingsstúlka á ég þá að fá samþykki samfélagsins – án tillits til aðstæðna? Ef ég segist vera blindur, á ég þá að fá að vera blindur? Ef ég segist vera svertingi, eiga þá allir að virða mig sem slíkan? Ef ég segist vera lamaður á ég þá að fá hjólastól?“
Kristján segir einnig:
„Aumingjavæðingin er hættuleg. Umburðarlyndið er skaðlegt þegar kemur að viðurkenningu duttlunga og komplexa. Við erum í raun og veru að svipta fólk rétti til mannsæmandi lífs með því að sýna tvöfalt siðgæði í formi hins falska samþykkis.
Samfélagið er að bregðast með því að sýna öryggisnet sem er fullkomlega glatað. Við ýtum undir fordóma með því að taka þátt í vitleysunni.
Hið versta við öll þessi minnihlutaréttindi er að þau skapa fordóma og gera í öllum tilvikum illt verra.
Ástæðan er sú að öll þessi svokallaða barátta er reist á viðurkenndri heimsku, fölskum forsendum og gagnkvæmum misskilningi.“
Heldur áfram að viðra skoðanir sínar:
„Hér á löggjafinn ekki að sýna tilslökun til þess að þjóna duttlungum athyglissjúkra minnihlutahópa. Hér á að sýna hörku og segja: HINGAÐ – OG EKKI LENGRA! Ef einhver segist vera fæddur í röngum líkama þá verður sá hinn sami að sætta sig við það. Ég vorkenni heimsku fólki og ég á þann kost vænstan að reyna að segja fólki sannleikann.
Vandinn liggur ekki í því að rétt fólk fæðist í vitlausum líkama. Vandinn liggur í því að vitlaust fólk fæðist í réttum líkama.“