Ökumaður rafskútu varð fyrir því óláni að detta og brjóta í sér tennurnar í gærkvöldi. Lögregla mætti á vettvang en kom þá í ljós að ökumaðurinn mældist hann langt yfir refsimörkum áfengis. Maðurinn gat því ekki stjórnað rafskútunni og á hann yfir höfði sér kæru vegna þessa.Síðar um kvöldið var ökumaður flutingabifreiðar stöðvaður fyrir að tala í símann undir stýri án handfrjáls búnaðar. Þegar betur var að gáð var ökumaðurinn heldur ekki með ökumannskort í bifreiðinni og verður hann einnig kærður fyrir það.
Slökkvilið var kallað út skömmu síðar vegna bifreiðar sem stóð í ljósum logum. Lögregla fór á vettvang en slökkvilið náði tökum á eldinum. Þá stöðvaði lögregla ökumann sem reyndist sviptur ökuréttindum. Maðurinn var undir áhrifum vímuefna og var með hníf á sér sem hann sagðist nota til þess að verja sig. Lögregla handtók manninn og flutti hann á lögreglustöð til blóðsýnatöku. Var hann laus að því loknu.