Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í fyrradag kannabisræktun í íbúðarhúsnæði í umdæminu. Um var að ræða tæplega sjötíu plöntur á ýmsum vaxtarstigum. Ræktuninni hafði verið komið fyrir á efri hæð hússins. Þrír voru handteknir vegna málsins og færðir til skýrslutöku. Allmikill búnaður sem notaður var við ræktunina var haldlagður.
Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglu.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.
Einnig er hægt að koma ábendingum á framfæri á Facebook – síðu lögreglunnar á Suðurnesjum.