Ráðherrakrísa Sjálfstæðisflokksins er nú um það bil að raungerast. Runninn er upp sá tími að Guðrún Hafsteinsdóttir á að verða dómsmálaráðherra samkvæmt loforði Bjarna Benediktssonar formanns. Vandinn hefur hinsvegar verið sá að Jón Gunnarsson vil ekki fara og hann situr sem fastast og nýtur stuðnings í því efni.
Nú flýgur fyrir að farsæl lausn sé í sjónmáli. Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfisráðherra mun vera boðið að verða sendiherra Íslands í Washington gegn því að fara þangað hið bráðasta og rými ráðherrastól sinn. Orðrómurinn er sá að hann hafi fallist á hugmyndina og að hann taki ekki niður fyrir sig með því að setjast í feitasta sendiherraembættið. Þar með leysir Bjarni ráðherrakrísuna og losnar við helsta andstæðing sinn úr flokknum og alla leið úr landi. Hann þarf þá ekki að hleypa Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í formannsstólinn í haust til að blokkera Guðlaug. Þetta er ekki staðfest en Bjarnamönnum í flokknum hugnast þessi málalok sem ættu að tryggja Jóni Gunnarssyni áframhald á ráðherrastóli og Bjarna frið til að koma upp nýjum formanni. Menn Guðlaugs sýna því skilning að hann sjái ekki fram á það að ná lengra í flokknum en orðið er …