Fimmtudagur 21. nóvember, 2024
-5.1 C
Reykjavik

Skipulagsbreytingar hjá Birtíng útgáfufélagi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Útgáfufélagið Birtíngur tilkynnti um skipulagsbreytingar og hagræðingu í rekstri í dag. Fjórtán starfsmönnum hefur verið sagt upp störfum og ná uppsagnir þvert á deildir fyrirtækisins.

Útgáfufélagið Birtíngur hefur verið starfandi frá árinu 1967 og gefur út fríblaðið Mannlíf, sem kemur út alla föstudaga í 80 þúsund eintökum í höfuðborginni. Engin breyting verður á útgáfu blaðsins sem hefur fest sig í sessi sem eitt mest lesna helgarblað landsins. Félagið gefur einnig út tímaritin Vikuna, Gestgjafann og Hús og hýbili og heldur úti vefnum man.is og ekki er fyrirhuguð breyting á útgáfu þessarra miðla.

Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir framkvæmdastjóri Birtíngs segir að það sé eðlilega mikið áfall fyrir starfsmenn útgáfunnar að missa vinnuna en að hagræðing í rekstri fyrirtækisins hafi verið nauðsynleg. „Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla hefur verið erfitt um langt skeið og núverandi efnahagslægð hafi mikil áhrif á auglýsingar fyrirtækja sem leiði af sér minni tekjur. Þá er áfram óvissa um úthlutun fjölmiðlastyrks og horfur efnahagsmála á komandi mánuðum.“

Sigríður segist vonast til þess að umhverfi einkarekinna fjölmiðla styrkist á komandi misserum en núverandi stærð og umsvif Rúv á auglýsingamarkaði ásamt samdrætti í efnahagsmálum þvingi fjölmiðlafyrirtæki til hagræðingar og fækkun starfa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -