Mikið var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og í nótt en alls voru 120 mál skráð frá klukkan 17 til fimm í morgun. Töluvert var um umferðarmál, svo sem beltislaust fólk í bifreiðum, nagladekk, of margir farþegar, ljósabúnaður í ólagi, skráningarmerki fjarlægð, akstur án réttinda og svo voru fimm ökumenn stöðvaðir vegna aksturs undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna.
Hér að neðan koma nokkur þeirra mála sem komu inn á borð lögreglu.
Í miðborginni var manni í annarlegu ástandi sökum ölvunar og eiturlyfja, vísað út af hóteli. Annar aðili í miðbænum var hantekinn eftir að hann hafði hoppað á þaki og vélarhlíf bifreiðar. Var hann vistaður í fangaklefa.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á Lækjartorg þar sem maður svaf ölvunarsvefni, þegar maðurinn var vakinn brást hann hinn versti við og réðist að lögreglu. Var hann handtekinn og vistaður í fangaklefa þar sem hann gat haldið áfram að sofa þangað til ástand hans lagast. Mannlíf spáir vandræðalegum morgni.
Á Seltjarnarnesi var kona handtekin og færð á lögreglustöð eftir að hafa verið til vandræða vði hús þar. Rætt var við hana á lögreglustöð og henni sleppt þar sem hún lofaði að láta af þessari hegðun.
Pöddufullur aðili var aðstoðaður eftir að hann datt og slasað sig lítilllega í miðbænum. Sjúkralið gerði að sárum hans og var honum í kjölfarið ekið til síns heima.
Svo virðist sem einhver hafi saknað skólans síns en útidyrahurð var skemmd á skólabyggingu í miðborginni.
Þá var aðila sem var ósjálfbjarga sökum ölvunar í miðbænum, ekið til síns heima þar sem útséð var að viðkomandi kæmi sér engan veginn heim hjálparlaust.
Í Hafnarfirði tóku krakkar upp á gamalli aðferð við að losna við rusl með því að kveikja í því í undirgöngum. Lítill eldur kviknaði og ekkert tjón.
Á heiðarmerkuvegi valt bíll og var einn fluttur með sjúkabifreið á slysadeild.
Maður í annarlegu ástandi í Kópavoginum gerði heiðarleg mistök er hann fór húsavillt en lögreglan vísaði honum rétta leið. Þá var aðili handtekinn í Kópavogi vegna líkamsárásar og gisti hann í fangaklefa í nótt.
Í Grafarholtinu var aðili í annarlegu ástandi handtekinn vegna líkamsárásar og eignarspjalla og var hann vistaður í fangaklefa og bíður skýrslutöku þegar ástand hans lagast.