Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá Bláa Lóninu í dag. Þetta kemur fram á mbl.is, þar segir að heimildir herma að „frekari hagræðingaraðgerðir“ verði kynntar.
Kórónuveirufaraldurinn hefur verið þungt högg fyrir Bláa Lónið en öll starfsemin hefur verið lokuð frá 23. mars, þetta á við um Bláa Lónið, Silica Hótel, Retreat Hótel, veitingastaður Bláa Lónsins og verslanir Bláa Lónsins.
164 starfsmönnum Bláa lónsins var sagt upp í störfum í mars og aðrir 400 starfsmenn voru settir í skert starfshlutfall.
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, ræddi í viðtali við Rás 2 í lok mars rekstrarerfiðleikana og þá staðreynd að Bláa Lónið nýtir hlutabótaleið ríkisstjórnarinnar. „Við erum að reyna að verja þessi 600 störf.“ Hann sagði að ef fyrirtækið hefði ekki nýtt sér úrræðið þá hefðu uppsagnirnar orðið fleiri og „höggið“ þannig meira.
Á vef Bláa Lónsins kemur fram að opnað verði aftur þann 14. júní.