Ferjan sem siglir með fólk á milli Dalvíkur og Grímseyjar, var föst í Dalvíkurhöfn í dag vegna bilana. Fjöldi fólks sem átti bókað flug úr landinu sat fast í Grímsey.
Mbl. sagði frá biluninni í Grímseyjarferjunni Sæfara en hann hóf aftur siglingar á miðvikudaginn eftir að hafa verið í slipp í tíu vikur. Fimm sinnum í viku siglir Sæfari til Grímseyjar í sumar. Átti ferjan að leggja af stað frá Dalvík klukkan 9 í morgun og koma að Grímseyjarhöfn klukkan 12.
Morgunblaðið hafði það eftir Bergþóru Kristinsdóttur, framkvæmdarstjóra þjónustusviðs hjá Vegagerðinni var stefnt á að sigla aftur til Grímseyjar klukkan 15 í dag.
Halla Ingólfsdóttir sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Trip í Grímsey er síður en svo sátt en hún segir ástandið á samgöngum til og frá eyjunni vera slæma, sér í lagi vegna þess að það er engin önnur leið til að komast af eyjunni.
„Ég er bara ósátt við það að við fáum ekki nýja ferju,“ segir Halla í samtali við mbl.is en Sæfari, sem hugsaður var til bráðabrigða, er orðinn 15 ára gamall.. „Það er hópur hér fastur sem er að fara af landi brott og treysti á að komast af landinu í dag.“
Sagði hún einnig að hún viti ekki hvort Vegagerðin, sem sjái um rekstur ferjunnar, muni útvega fólkinu sem strandaði á eyjunni, flugvélar.
„Það er aldrei til plan-b,“ segir hún. „Ferjan kom á sínum tíma bara handónýt til landsins og það kostaði mikið að gera hana þokkalega og okkur var sagt að hún yrði bara bráðabirgðaskip.“
„Við höfum það svolítið á tilfinningunni að það sé öllum alveg drullusama um þessa eyju,“ segir hún. „Vestmannaeyingar væru orðnir klikkaðir ef þetta bitnaði á þeim.“
Halla segir að ferðaþjónustutímabilið á Íslandsi sé stutt en jafnvel enn styttra í Grímsey. „Núna erum við búin að missa allan apríl og allan maí [vegna þess að skipið fór í slipp], við erum komin inn í miðjan júní og þá er ferjan biluð,“