Forsíða sunnudagsblaðs The New York Times er þakin nafnalista. Á listanum eru nöfn fólks sem hefur látist af völdum COVID-19 í Bandaríkjunum.
Nýjasta tölublað New York Times sem kom út í morgun er einstakt en á forsíðu blaðsins er að finna lista yfir nöfn þeirra sem hafa látist í Bandaríkjunum af völdum COVID-19. Nafnalistinn er birtur undir yfirskriftinni: „Þau voru ekki bara nafn á lista. Þau voru við.“
Á forsíðu blaðsins kemur einnig fram að tala látinna nálgist 100.000 og að missirinn sé mikill.
Í grein um þessa einstöku forsíðu á vef New York Times segir Simone Landon, starfsmaður á umbrotsdeild blaðsins, að ritstjórnin hafi viljað sýna myndrænt hversu mikill missirinn sé.
Núna er tala látinna í Bandaríkjunum orðin 97.087 samkvæmt korti Johns Hopkins háskólans. Landon segir það blasa við að á næstu dögum muni tala látinna fara yfir 100.000. „Okkur fannst við verða að gera þessari tölu skil með einhverjum hætti,“ sagði hún.