- Auglýsing -
Íslendingur vann rúmar 75 milljónir í Eurojackpot í vikunni. Þetta kemur fram á lotto.is. Þar segir að fyrsti vinningur hafi ekki gengið út en að fjórir heppnir miðahafar hafi skipt með sér 2. vinning og fá þeir rúmar 75 milljónir hvor, einn þeirra heppnu er Íslendingur.
Miðann sem tryggði honum rúmar 75 milljónir keypti hann í Vídeómarkaðnum í Hamraborg í Kópavogi. Hinir þrír vinningsmiðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Svíþjóð og Ungverjalandi.