Auglýsingastofan Pipar/TBWA hefur kært Ríkiskaup til kærunefndar útboðsmála vegna ráðningar alþjóðlegu auglýsingastofunnar M&C Saatchi við gerð markaðsherferðinnar Ísland – Saman í sókn. Mbl greinir frá.
Þar segir að í kærunni komi fram að Pipar/TBWA telji að brotið hafi verið gegn lögum um opinber innkaup með kaupum á þjónustu M&C Saatchi. Þá segir einnig að Pipar/TBWA fari fram á að fyrirhuguð samningsgerð við M&C Saatchi verði stöðvuð og að gengið verði til samninga við Pipar/TBWA.
Pipar í öðru sæti
Þegar ljóst var að M&C Saatchi myndi sjá um verkefnið sendi Ríkiskaup frá sér einkunnir þeirra stofa sem voru í þremur efstu sætunum, íslenskar stofur voru í öðru og þriðja sæti.
M&C Saatchi Ltd. með 87,17 af 100 punktum, 1. sæti
Pipar Media með 86,35 af 100 punktum, 2. sæti
Brandenburg með 77,38 af 100 punktum, 3. sæti
Forsvarsmenn Pipar/TBWA lýstu yfir vonbrigðum með niðurstöðurnar og gagnrýndu að verkefnið færi til Bretlands.
Þess má geta að Íslandsstofa sendi frá sér tilkynningu eftir að tilkynnt var um að auglýsingastofan M&C Saatchi hefði verið ráðin í verkefnið og var áréttað að í tillögu M&C Saatchi var tekið fram að auk þess sem stofan væri með innlendan samstarfsaðila væri gert ráð fyrir að öll þjónusta við framleiðslu og kostnaður vegna hennar verði hér á Íslandi.
Sjá einnig: Svara gagnrýni og segja meirihluta framleiðslunnar fara fram hér