Í dag verður skýrsla Fjármálaeftirlitsins um meint misferli stjórnenda Íslandsbanka opinberuð. Rannsókn á sölu á hluta bankans leiddi í ljós að um afglöp er að ræða við sölu hlutarins sem voru einungis fyrir valda gæðinga bankans. Bankastjóri og stjórn bankans féllust á að greiða 1200 milljónir króna í sekt, sem er lýsandi fyrir stærð málsins.
Birna Einarsdóttir bankastjóri og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra bera stærsta ábyrgð á málinu. Bæði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra hafa kallað eftir ábyrgð þeirra sem komu bankanum fram af brúninni í lagalegum og siðferðilegum skilningi. Lilja benti jafnframt á bankastjórann sem hefði gegnt lykilhlutverki í hruninu og væri nú á þeim stað að skaða bankann. Ekki verður annað séð en að hvergi sé skjól að finna og örlagadagur Birnu fari að renna upp …