Segja má að fáir kunni þá list betur að vera fyndinn en skjóta um leið svo hárfínt en bylmingsfast á andstæðinga sína að það er varla nokkur leið að svara, heldur en Brynjar Níelsson. Eitt langbesta dæmið um slíkt er nýjasta færsla hans en þar talar hann um hugtakið „Níelssonnöldur“ sem hann segir mjög þektk í Níelsson fjölskyldunni. Lýsir hann slíku sem „nöldur og þrasgirni með dassi af þrjósku“. Og svo getur Brynjar ekki hamið sig um að skjóta á andstæðinga sína og talar um „leiðindanöldur“ sem sé þekkt í Leví fjölskyldunni og á þá við Björn Leví Gunnarsson Pírata sem hefur verið duglegur að láta Sjálfsstæðismenn heyra það á þingi og utan þings. Þá talar hann einnig um „hardcore nöldrara“ sem séu „stíflaðir af frekju“. Færsluna má lesa hér að neðan:
„Nöldur og þrasgirni með dassi af þrjósku er mjög þekkt í Níelsson fjölskyldunni en virðist að mestu bundin við beinan karllegg. Níelssonnöldur er orðið þekkt hugtak. En nöldur er ekki sama og nöldur. Nöldur getur verið listgrein og beinlínis fagurt eða svokallað leiðindanöldur, sem mun vera þekkt í Leví fjölskyldunni. Það eru fáir sem hafa þetta listræna og fágaða nöldur úr Níelsson ættinni í sér en því fleiri nöldurseggir sem sérhæfa sig í almennum leiðindum..