Illugi Jökulsson bendir á að meirihluti þjóðarinnar hafi verið á móti sölu hluta ríkisins í Íslandsbanka í fyrra.
Í nýrri færslu á Facebook bendir rithöfundurinn og fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson á þá staðreynd að samkvæmt skoðanakönnunum sem gerðar voru í fyrra hafi andstaða þjóðarinnar við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, komið bersýnilega í ljós en að yfirvaldið hafi hundsað það. Þá segir hann að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefði aldrei átt að annast þá sölu.
Færsluna má lesa hér að neðan:
„Áður en lengra er haldið, þá er rétt að minna á að allar skoðanakannanir gáfu til kynna að meirihluti þjóðarinnar — eigandi að stærstum hluta Íslandsbanka — væri alveg á móti sölu á hlut bankans í fyrra. Katrín, Sigurður Ingi og Bjarni virtu þann þjóðarvilja að vettugi, eins og venjulega. Burtséð frá öllu öðru, þá átti sem sagt aldrei aldrei að selja þennan hlut á þeim tímapúnkti. Og auðvitað átti Bjarni Benediktsson aldrei að annast þá sölu. Í siðvæddum löndum hefði sú staðreynd hefði verið talin frekar slappur brandari.“