Þingmenn stjórnarflokkanna keppast um að komast í sviðsljósið og krefjast þess að Íslandsbanki birti starfslokasamning Birnu Einarsdóttur, fráfarandi bankastjóra. Illugi Jökulsson finnst það „ógeðfellt.“
Birna Haraldsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins og Þórarinn Ingi Pétursson þingmaður Framsóknarflokksins hafa bæði komið fram að undanförnu með þá tafarlausu kröfu að starfslokasamningi Birnu Einarsdóttur verði birtur strax. Þetta finnst Illuga Jökulssyni fjölmiðlamanni vera merki um tilraun þeirra til að beina athyglinni frá ábyrgð ríkisstjórnarinnar og „kröfum um almennilega rannsóknarnefnd.“ Að nú eigi að „beina allri andúðinni að Birnu einni.“
Færsluna má lesa hér að neðan:
„Sko. Auðvitað á að birta starfslokasamning Birnu Einarsdóttur, það segir sig bara sjálft. En áhersla stjórnarþingmanna á einmitt það er ekkert annað en fyrirlitleg tilraun til að beina athyglinni frá hlut ríkisstjórninnar og kröfum um almennilega rannsóknarnefnd, heldur skal nú beina allra andúðinni að Birnu einni. Það er verulega ógeðfellt að horfa upp á þetta.“