Lögregla var kölluð út í nótt vegna alvarlegrar líkamsárásar þar sem hnífi var beitt. Samkvæmt dagbók lögreglu var þolandi fluttur á bráðamóttöku og var hann með meðvitund. Líðan mannsins er eftir atvikum en málið er til rannsóknar. Þá veitti lögregla engar upplýsingar um geranda í málinu. Skömmu síðar barst lögreglu tilkynning um mikinn eld í grilli. Vel gekk að slökkva eldinn og tjónið varð sem betur fer ekki mikið.
Athugull íbúi hringdi á lögreglu þegar hann varð vitni að yfirstandandi innbroti í heimahús. Þegar betur var að gáð reyndist m að ræða fólk sem var að koma sér fyrir í íbúð sem þau höfðu leigt á airbnb. Þá sinntii lögregla reglubundnu umferðareftirliti og stöðvaði tvo ökumenn sem báðir voru í annarlegu ástandi. Annar var undir áhrifum áfengis en hinn undir áhrifum fíkniefna.