- Auglýsing -
Hvít duft fannst í vinnurými í Hvíta húsinu. Mjög líklega er um að ræða kókaín. Efnið fannst við reglubundið eftirlit.
Joe Biden forseti var ekki á svæðinu þegar efnið fannst. Leyniþjónustan neitar því að efnið hafi fundist í vistarverum hans.
Ekki er vitað nákvæmlega hvar efnið fannst en svo virðist sem viðbragðsaðilar í Washington DC, nánar tiltekið slökkviliðið sem gerði prófanir á efninu, hafi staðhæft við stjórnstöð að það hafi verið á bókasafninu og efnið væri „kókaín hýdróklóríð“.
Rannsókn er í gangi á málinu.