Fólk getur búist við eldgosi samkvæmt Þórhalli Ragnarssyni, jarðfræðingi, sem Mannlíf ræddi við.
Mikil jarðskjálftahrina hefur gengið yfir í dag eins og Íslendingar á suðvesturhorni hafa fengið að kynnast og hafa fleiri en 1.700 mælst síðan í gær. Stærsti jarðskjálftinn sem mælst hefur hingað til var 4,8 á stærð og hefur alþjóðlegum litakóða fyrir millilandaflug verið breytt í appelsínugulan.
„Þessir jarðskjálftar síðustu daga tengjast kvikuhreifingum og eru að mælast á frekar grunnu dýpi.“ segir Þórhallur um ástæður jarðskjálftanna. Þegar Þórhallur var spurður um framhaldið og við hverju fólk mætti búast við sagði hann: „Ég býst við að skjálftahrinan haldi áfram næstu daga/vikur á meðan kvikan er að reyna að troða sig í gegn um jarðskorpuna.“
Þórhalli þykir atburðarrásrásin benda til þess að gos sé í vændum. „Það er alltaf erfitt að segja til um hvort það sé að hefjast gos. En miðað við að atburðarrás fyrri gosa á þessu svæði, árin 2021 og 2022, er keimlík því sem er að gerast núna, þá er líklegra en ekki að þetta endi með gosi.“ segir Þórhallur.