Föstudagur 10. janúar, 2025
-0.2 C
Reykjavik

Óvæntar upplýsingar komu í ljós þegar lögregla hafði afskipti af manni í Laugardal

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglu barst tilkynning í gærkvöld um mann í annarlegu ástandi í hverfi 104. Þegar betur var að gáð kom í ljós að viðkomandi hafði framið rán ásamt þremur öðrum fyrr um daginn. Maðurinn var handtekinn en hafði hann, ásamt öðrum, veist að erlendum ferðamanni og tekið af honnu verðmæti. Hluti ránfengsins er fundinn og er málið í rannsókn. Síðar um kvöldið var lögreglu gert vart við hópslagsmál en þegar komið var  á vettvang voru mennirnir hvergi sjáanlegir.

Ólögráða einstaklingur var eltur uppi af lögreglu í gær en sá er grunaður um þjófnað í verslun. Þar sem um var að ræða barn var málið sett í viðeigandi ferli og tilkynning send til barnaverndar. Nokkrar tilkynningar vegna grunsamlegra mannaferða bárust lögreglu en í Kópavogi var tilkynnt um konu sem var ráfandi um og illa áttuð. Var henni ekið á dvalarstað sinn. Þá sinnti lögregla umferðareftirliti og öðrum minniháttar málum en samkvæmt dagbók lögreglu var nóttin tiltölulega annasöm.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -