Illugi Jökulsson skýtur bylmingsfast á fjármálaráðherra Íslands vegna Lindarhvolsmálsins svokallaða.
Í nýlegri færslu á Facebook tekur Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður, fyrir frétt Vísis þar sem Bjarni Benediksson segist ekki hafa lesið greinargerðina um Lindarhvol sérstaklega, þrátt fyrir að hafa verið með hana í höndum í fimm ár. Illugi veltir fyrir sér hvort það geti hugsast að fjármálaráðherrann sé að ljúga.
„Hann hefur haft þessa greinargerð undir höndum í hálfan áratug. Hún snýst um mjög mikilvæga hluti sem heyrðu undir Bjarna, vörðuðu mikla almannahagsmuni og framkvæmdin er gagnrýnd harðlega í greinargerðinni. Og í mörg ár hefur það verið sjálfstætt pólitískt deilumál hvort birta skuli greinargerðina. En öll þessi ár hefur Bjarni „ekkert sérstaklega“ séð ástæðu til að lesa hana. Og hann virðist telja sér það til tekna, þó auðvitað sé þá um að ræða skammarlegt skeytingarleysi. En svo gæti hann verið að ljúga. Bjarni gerir það stundum.“