Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður er harðorður í garð Orra Páls Jóhannssonar í nýrri Facebook-færslu.
Illugi, sem er þekktur fyrir að sitja ekki á skoðunum sínum um menn og málefni, skrifað færslu á Facebook þar sem hann lætur Orra Pál Jóhannsson, þingmann Vinstri grænna, heyra það. Þingmaðurinn sagði nýlega í fréttum að hann teldi ekki ástæða til að kalla saman sumarþing svo hægt verði að ræða Lindarhvolsmálið og fleiri hneykslismál sem nú skekur ríkisstjórnina. Spyr Illugi: „Finnst honum allt í lagi að vera afhjúpaður sem augljós hræsnari?“
Hér er færslan:
„Þingflokksformaður VG telur enga þörf á að Alþingi komi saman og ræði nokkurn hlut. Hann heitir Orri Páll Jóhannsson og drottinn minn dýri, hvað honum hefði þótt mikil ástæða til að þing kæmi saman ef það væri ekki hans flokkur sem ætti undir högg að sækja! — En finnst honum allt í lagi að vera afhjúpaður sem augljós hræsnari?“