- Auglýsing -
Hrafn Jónsson bendir á skemmtilega samlíkingu í færslu sinni á Facebook. Þar bendir hann á bestu leiðina til að miðla því til samfélagsins að þú sért búinn að klúðra eða alveg að fara að klúðra einhverju, þegar þú gegnir áhrifastöðu.
Um er að ræða leynivopn almannatengilsins að mati Hrafns, köflóttu almúgaskyrtuna, „enn með straufarinu og Dressman verðmiðanum hangandi niður bakið,“ segir Hrafn.
„Svona klæðir venjulegt fólk sig er það ekki?“