Jörðin heldur áfram að skelfa og skjálfa og spá sérfræðinga um eldgos stendur óhögguð eftir skjálfta næturinnar.
Rúmlega 600 jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti en hafa þeir verið heldur minni en þeir sem mældust sólarhringana á undan. Þrátt fyrir það mældist þó einn sem var 5,2 rúmlega klukkan 22:23 í gærkvöldi. Stærst skjálftinn fram að þessum jarðskjálfta hafði verið 4,8 á stærð en hann mældist þann 5. júlí. Í heildina hafa rúmlega 12 þúsund skjálftar mælst frá því að hrinan hófst.
„Þetta hefur aðeins minnkað; aðeins fækkað skjálftunum og þeir eru allir minni,“ sagði Böðvar Sveinsson, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands í samtali við Vísi í morgun.
„Það er svolítið skrýtið að þetta skuli ekki vera komið upp miðað við hvað þetta er nálægt skorpunni,“ sagði Böðvar þegar hann var spurður út í eldgos.
Ýmsir áhugamenn hafa velt sér fyrir gufunni sem er byrjuð að sjást á svæðinu og hvað það þýði.
„Hraunið er ennþá mjög heitt á sumum stöðum og gas að losna úr. Kannski hefur það eitthvað aukist þegar það kemur meiri hiti þarna nær. Svo er líka náttúrulega stillt veður þarna núna. Enginn sérstakur vindur þarna og þá sést gufa náttúrulega betur,“ sagði Böðvar í samtali við mbl.is.