Gosið við Litla-Hrút heldur ennþá fullum og óbreyttum styrk. Gossvæðið við Litla-Hrút er ennþá harðlokað almenningi að ákvörðun Lögreglunnar á Suðurnesjum. Stífur vindur er á svæðinu og talið vera stórhættulegt að vera á ferli nærri jarðeldunum.
Slökkviliðið í Grindavík vann að því fram á nótt að slökkva elda í gróðri í nágrenni gossins við Litla-Hrút þangað til klukkan var um tvö í nótt. Reiknað er með að slökkvistarf hefjist að nýju með morgninum.
Spáð er stífri norðanátt fram yfir helgi og óljóst hvenær lögreglan leyfir umferð um svæðið sem heyrir undir Sveitarfélagið Voga. Fólki hefur enn ekki verið gefinn kostur á því að ganga styttri leið frá Höskuldarvöllum, um Oddafell, að gosstöðvunum. Þess í stað er allri umferð beint í gegnum Grindavík og að bílastæðum við Borgarfjall og Slögu. Það þýðir allt að 30 kílómetrum lengri akstur frá höfuðborgarsvæðinu. Sú ákvörðun er í raun óskiljanleg.