- Auglýsing -
Ævar Þór Benediktsson rithöfundur hefur skrifað undir samning við framleiðslufyrirtækið Sagafilm um gerð á nýrri leikinni sjónvarpsþáttaseríu. Ævar Þór mun annast skrif handritsins.
Í fésbókarfærslu sem Ævar deildi, fyrir skemmstu, kemur fram að þættirnir verða með ráðgátu-hryllings-thriller ívafi, en þó stútfullt af húrmori og hjarta og henti áhorfendum á unglingsaldri og eldri.
Hann deilir með fylgjendum sínum nafni seríunnar:
„Já, og hvað heita svo herlegheitin?
Martröð.
Serían heitir Martröð.
Ég get ekki beðið! Sjàumst à skjánum“
Hér að neðan má sjá færslu Ævars Þórs í heild: