Ég hef unnið núna við ferðaþjónustu síðastliðin sjö ár og verð að viðurkenna að sem leiðsögumaður með meirapróf hef ég fengið að njóta gífurlegra vellystinga fjárhagslega og andlega sem nokkru sinni um ævina. Þetta er sannkallað partý með fólki sem hefur nötrað af tilhlökkun við að koma til Íslands, frír matur og lúxushótel.
En það er ekki hjá því komist að hugsa til þess hvers vegna ég fæ að njóta slíkra lífsgæða, hverjum ætli sé að þakka að við sem mökum krókinn getum notið slíkra veiga?
„Hver einasti Íslendingur sem ég hef unnið fyrir hefur svikið mig!“
Það er erfitt til þess að hugsa að þetta sé almennt viðhorf þeirra erlendu ríkisborgara sem hafa komið hingað s.l. ár og fært stórar fórnir víðs fjarri heimahögum og sínum nánustu við að vinna og halda uppi þessum iðnaði sem við státum okkur af.
Sérstaklega þar sem ég kný atvinnu mína alfarið á þjóðarrembu og stolti.
Það er mikið talað um innflytjendur þessa dagana og svertir það mikið fyrir okkur rembunum hér á Fróni hversu orðljót við getum verið :
„Geta þessar afætur ekki verið heima hjá sér?“
Svo hljómaði færsla á Fésbókinni um daginn þegar verið var að ræða um hælisleitendur frá Venesúela.
„Hvað með afæturnar sem flytja héðan til annara landa?“ var eitt svarið við færslunni og ætla ég að taka undir það.
Ég hef skrifað áður um það sem ég tel vera þrælahald nútímans … í raun þá erum við ekkert búin að breytast hvað það varðar síðan á Víkingaöld.
Þetta er að sjálfsögðu ekki algilt og veit ég um marga atvinnurekendur í ferðaþjónustu sem eru mikið heiðarlegir og gera vel við sitt fólk.
En það er ekki hjá því komst að minna okkur Íslendinga á að það eru þeir 25.000 pólskir ríkisborgarar og fólk frá öðrum löndum sem hafa séð til þess að við getum rekið þessa ferðaþjónustu.
Raunin er reyndar sú að ekki bara þar heldur hefur þetta mikið svo vinnusama fólk haldið uppi flestum greinum sem Íslending vilja ekki sjá að vinna.
Þannig að … Takk Pólland, takk Tékkland og þið öll sem hafið fært ykkar fórnir, ekki kunnað tungumálið og látið öskur og vanþakklæti yfir ykkur ganga.
Og fyrir hönd … hmm … sjálfs míns held ég a.m.k.:
Innilega afsakið fjárans Víkingana!
Virðingarfyllst
Ragnar Erling Hermannsson