Miðvikudagur 20. nóvember, 2024
-4.5 C
Reykjavik

Hetja að störfum við stækkandi gíg

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá við Háskóla Íslands birt í gær stöðuuppfærslu á Facebook þar sem er greint er frá rannsóknum á eldgosinu. Eitt af því sem vísindamenn, sem fóru að gosinu, gerðu var að mæla gíginn.

Gígurinn reyndist vera um 22 metra hár en hefur hann þá hækkað að meðaltali um þrjá metra á dag síðan að eldgosið hófst. Rannsóknarstofan setti einnig upp myndavél til að fá myndir í háupplausn sem gerir vísindamönnum kleift að fá betri upplýsingar um eldgosið.

Meline Barbara Payet-Clerk, doktorsnemi, stóð sig eins og hetja að sögn Rannsóknarstofunnar. Hægt er að sjá myndir af henni að störfum hér fyrir neðan.

Svæðið er ennþá lokað almenningi en sumt fólk lætur það ekki stoppa sig. Í nótt voru björg­un­ar­sveit­ir á Suður­nesj­um kallaðar út vegna manns sem hafði orðið viðskila við vin sinn á svæðinu. Hann fannst svo 90 mínútum síðar með aðstoð dróna og var maðurinn sóttur af lögreglu í kjölfarið.

Tilkynnt verður um mögulega opnun á svæðinu síðar í dag.

May be an image of 1 person, crater and mountain

- Auglýsing -

May be an image of 1 person and arctic

May be an image of 1 person

 

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -