Stéttarfélagið Efling og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning laust fyrir miðnætti þar sem samið var fyrir hönd félagsmanna sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Sveitarfélaginu Ölfusi og Hveragerðisbæ. Verkfallið náði til um 260-270 félagsmanna sem margir vinna við þrif í grunnskólum og heimaþjónustu.
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarness, er fegin að samningar náðust og vonar að félagsmenn Eflingar samþykki samninginn.
„Ég fagna þessari niðurstöðu. Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga lagði fram tilboð til Eflingar sem félagið samþykkti, ég fagna því góða samtali sem fór fram um helgina undir stjórn ríkissáttasemjara milli aðila,“ segir Ásgerður í samtali við Mannlíf.
„Andinn í samningaviðræðunum var að ná fram kjarabót með hækkun lægstu launa, ég vona að félagsfólk Eflingar samþykki þennan samning.“
„Það var góð tilfinning að sjá börnin mæta í skólann í dag…“
Þann 24. mars féllst Efling á að fresta verkfallsaðgerðum sem hófust 9. mars vegna kórónuveirufaraldursins. Verkfallsaðgerðir hófust þá aftur 5. maí eftir hlé.
Ásgerður segir það hafa verið ánægilegt að sjá fólk snúa aftur í vinnu eftir verkföll. „Það var góð tilfinning að sjá börnin mæta í skólann í dag og starfsfólk Eflingar.“
Nú vinnur Efling að kynningu samningsins og undirbúning atkvæðagreiðslu fyrir félagsmenn.
Sjá einnig: Efling og Samband íslenskra sveitarfélaga semja – Segir kjarabætur beinan árangur af verkfallsaðgerðum