Ýmis mál komu til kasta lögreglu í nótt og að venju var nokkuð um ölvun í miðbænum.
Mannlaus bíll rann á annan mannlausan bíl að sögn lögreglu. Tjónaform voru fyllt út á vettvangi en ekki er upplýst hvernig málið kom til. Þá voru níu einstaklingar handteknir vegna gruns um að keyra undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis. Mikið var um hávaðatilkynningar í Kópavogi og Breiðholti en ekki farið í smáatriði hvernig hávaða um ræddi.
Í Garðabæ hins vegar var tilkynnt um trommara með hávaða. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvernig málið var leyst. Lögreglan lét 120 ökumenn blása í áfengismæli í Hafnarfirði og tveim þeirra var gert að stöðva akstur. Þá var tilkynnt um fjórar líkamsárás á höfuðborgarsvæðinu í nótt og þurftu tveir gerendur að gista fangaklefa þess vegna.