Fyrirsætan Kylie Jenner er aftur orðin laus og liðug eftir að kærasti hennar hætti með henni.
Kylie Jenner, ein frægasta fyrirsæta heimsins í dag, er nú á lausu eftir að Timothée Chalamet hætti með henni. Parið hafði verið saman í sjö mánuði en Chalamet sagði hingað og ekki lengra og sleit sambandi þeirra. Timothée Chalamet er þekkastur fyrir að leika aðalhluverkið í myndinni Dune. Ónafngreindir vinir Kylie Jenner segja að leikarinn sé sá fyrsti kærastinn sem hún eyðir einhverjum tíma með eftir að hún hætti með Travis Scott. Þá segja sömu heimildir að hún hafi kynnt Chalamet fyrir fjölskyldu sinni. „Kylie er að reyna láta lítið á ber en vinir hennar vita að þetta stingur,“ sagði einn heimildarmaður.