Forstjóri lækninga á Vogi segir að minni eftirspurn sé eftir meðferð hjá ungu fólki en að neysla áfengis hafi aukist.
Í gær var greint frá því að innflutningur á kókaíni og neysla þessi hafi aukist og var það mál tengt við þá sex einstaklinga sem sitja í gæsluvarðhaldi sem tengjast innflutningi. Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga á Vogi, segir að þau hafi orðið var við þessa aukningu eftir minna fór að bera á Covid.
„Það merkilegasta sem við sjáum í okkar tölum síðustu ár er þessi minni eftirspurn ungs fólks eftir meðferð, en það er dramatísk fækkun síðustu þrjú ár. Hinsvegar ef við tökum fólkið sem kemur til okkar á þessum aldri, að þá eru einstaklingarnir þar í mjög blandaðri og oft alvarlegri neyslu. Um það bil helmingur einstaklinga sem kemur er að nota kókaín og eins og hefur verið margumtalað, ópíóðana. Þeir eru í hæsta hlutfalli í þessum yngsta neytendahópi,“ sagði Valgerður í viðtali á Bylgjunni í gær.
Þá hafi áfengisneysla aukist í heimsfaraldrinum.
„Það er ennþá stærsta og alvarlegasta vandamálið, það er áfengið. Langflestir fá greiningu á áfengisfíkn þó þeir noti oft mikið önnur vímuefni. Talandi um kókaín, langflestir sem koma til okkar og eru með kókaínfíkn eru líka með áfengisfíkn. Sú neysla fer nú oft saman, áfengi og kókaín, eins og örvandi efni önnur.“