Skrifstofa Fógeta í Pinellas County í Flórída birti myndskeið Facebook síðu sinni þar sem farið er þess á leit við almenning að hringja ekki í skifstofur þeirra verði fólk vitni að orgíum sækúa í flæðarmálinu, þetta sé fyllilega eðlilegt þar sem fengitími dýranna er genginn í garð.
Miðlægar skrifstofur embættisins í fylkinu bættu við að „Sækýr eðla sig raunar í svona hópum og gjarnan í flæðarmálinu.“
Aðfarirnar gera verið nokkuð frísklegar og fyrir vikið hefur fólk sem orðið hefur vitni að dýrunum í miðjum klíðum oft ályktað að dýrin væru í nauðum stödd en svo er alls ekki.
Fólki er þó ráðlagt að halda sig fjarri og trufla dýrin ekki við þessa iðju.