Lögregla var kölluð út í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi vegna slagsmála. Einn var fluttur á slysadeild eftir átökin en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort aðilinn hafi slasast alvarlega. Síðar um kvöldið var lögregla kölluð til á nýjan leik í miðbænum en þar hafði karlmaður lamið annan með kjöthamri. Þolandinn hlaut áverka á eyra og var gerandi vistaður í fangaklefa. Í Vesturbænum brá íbúa í brún við heimkomu þegar hann sá að brotist hafði verið inn á heimili hans. Hafði hann því samband við lögreglu sem rannsakar nú málið.
Í hverfi 108 varð íbúi vitni að mönnum sem voru að reyna að brjótast inn. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að þar voru gluggaþvottamenn að störfum og málið því byggt á misskilningi. Þá barst lögreglu tilkynning um heimilisofbeldi í Garðabæ og konu sem hafði verið rænd veski í Breiðholti. Auk þess sinnti lögregla reglubundnu umferðareftirliti.