Mannlíf fékk nokkra viðmælendur til að velta fyrir sér björtu hliðunum í veirufaraldrinum. Eyþór Eðvarðsson, hjá París 1.5, hópi áhugafólks um loftslagsmál, ver einn þeirra.
Hann segir kórónuveirufaraldurinn vera góðar fréttir fyrir plánetuna. Hann óttast hins vegar að allt kunni að fara aftur í sama horf.
„Þótt það sé skelfilegt að segja þetta þá er það svo. Það er kannski slæmt að segja það að maður sé bara ánægður með þetta en það eru klárlega jákvæð áhrif af þessari veiru. Hún hefur hægt svo á hagkerfum heimsins að það sést úr geimnum. Í Kína hefur verið allt að 25% samdráttur á losun gróðurhúsaloftegunda. Ef við spilum þetta vel hér eftir þá er hægt að ná miklum árangri,“ sagði Eyþór í viðtali í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.